PETER-GUNZ

Peter-Gunz

31.07.2007 13:10:06 / gunzb

og hvað.....

Fólk er að gera grín af mér því ég hef víst ekkert bloggað síðan 23.maí... hmm hmm ég bara gerði mér ekki grein fyrir hvað tíminn líður hratt! Mér finnst ekkert eins og það séu rúmir tveir mánuðir síðan.... alveg satt!

ég er búin að vera bara í rólegheitum þetta sumar, búin að mála hluta af gluggunum á húsinu, fara aðeins í beðin og slá svona eins og gerist og gengur hjá fullorðna fólkinu, ótrúlegt að ég sé orðin svona stór!

ég hef farið í sveitina og smá á hestbak, verið dugleg í ræktinni þangað til fyrir 3 vikum en þá hófst letin, en hún er nú að renna af mér og fór ég í spinning með Birgittu í gær þannig maður ætti að vera komin af stað aftur.

ég og Rikki sátum á pallinum einn föstudaginn fyrir rúmum tveim vikum og vorum eitthvað að velta fyrir okkur hvað við ættum að gera, ákváðum við að vera nú sniðug og hringdum bæði í icelandair og express til að tjékka á lausum sætum til london þann föstudaginn og heim á sunnudeginum, bæði flugfélögin áttu laust en miðinn kostaði 50.000 á mann og ég aurasálin tímdi ekki að splæsa í það þrátt fyrir að Rikki tugði endalaust í mér að panta bara miðana... svo að þessi tvö flugfélög komu í veg fyrir að Íris og Chris fengu óvænt bank á útidyrahurðina það föstudagskvöld!

verslunnarmannahelginni verður eytt í sveitinni og er fyrirhuguð hestaferð sem á að taka tvo daga, veit ekki hversu dugleg ég verð en ég fer einhverja leggina, svo er bara að sjá til hvort pjattrófan í mér þoli að sitja á baki ef það verður mígandi rigning.

ég er komin í sumarfrí til 15.ágúst og ætlum við að skreppa til Hollands þann 8.ágúst og koma heim þann 13. Við erum að fara á HM því Svaki bróðir minn er að fara að keppa í fjórgang... híhaaa! Þannig Íris og Bergey ef þið hafið ekkert að gera þá er bara um að gera fyrir ykkur að koma og hitta mig og mína í Eindhoven hihihi ..... Yes????

jæja núna er bara ekki mikið meira sem ég hef að segja enda nóg komið en endilega krotið athugasemd þó svo hún snúist ekkert um þessa færslu, bara svo ég sjái hver kíkti við.... annars þangað til seinna og í bili, kveðja Pétur.


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 12:24:22 / gunzb

23.maí

ég auglýsi hér með eftir upplýsingum um þennan dag.... 23.maí! því ég er búin að vera með hann í hausnum í viku og sama hversu djúpt eða langt ég hugsa um þennan dag þá finn ég ekki ástæðuna fyrir því að þessi dagur á hug minn allan! þannig vinsamlegast aðstoðið mig í þessu, hver á afmæli, hvað á að gerast og svoleiðis.... áður en ég verð kolkreisí á þessu.

 Pétur.


» 14 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 15:52:45 / gunzb

16.Maí

Rikki minn og Gísli hennar Ástu eiga afmæli í dag... Marta sys á morgun... til hamingju með það öll sömul!

 Við fórum fjölskyldan á Josh Groban í gær og hann er auðvitað algjört æði!!! Syngur rosalega vel og svo er hann svo léttur og kátur og gerir óspart grín, tók eitt trommusóló fyrir okkur og rölti um höllina og söng fyrir fólk útum allt... frábært í alla staði!

 ég hef svo sem ekkert merkilegt að segja... er að vísu komin í helgarfrí eftir kl 16 í dag... styttist í það þannig héðan er bara allt gott að frétta og í góðu standi....

 hilsen í bili Gunnhildur


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.03.2007 15:34:26 / gunzb

laugardagur til lukku ??? eða pestar hmmmm

Vonandi þýða undanfarnir dagar góða heilsu og yndislega veru í nýja húsinu okkar! Við fluttum á laugardaginn fyrir viku, þá var Árni Steinn með gubbupest greyið, á sunnudagskvöldið heltist í Rikka kvefpest. Á þriðjudagskvöldið byrjaði ég að hósta á miðvikudaginn var ég hreinlega að kafna og byrjaði að fá í magann, á fimmtudaginn var mér farið að standa á sama hvort ég myndi lifa þetta af því þá var ég byrjuð að æla með hóstanum og horinu, sexy! grrr....  fór til læknis í gær og þar fékk ég að vita að ég væri bæði með ælupestina og inflúensuna, alltaf gott að taka þetta allt út í einu bara, í dag er ég nú öllu skárri, er búin að vera á fótum í 4 klkt en finn að ég þarf að fara að leggja mig. Orkan ekki upp á marga fiska!

 Húsið er æðislegt og munum við örugglega njóta þess í botn um leið og heilsan leyfir, allir velkomnir í heimsókn en það er þá á ykkar eigin ábyrgð, ég ætla ekki að fá skammir um smit eða þess háttar ef þið veikist.

Ég hef svo sem ekkert að segja þar sem ég hef ekki verið neitt með á nótunum undanfarna daga... ég er að vísu komin á það að ég vill ekki fá álver hingað! Ég vill fá fyrirtæki sem skilar hálaunastörfum á svæðið en ekki láglauna... atvinnuleysi er ekkert hérna, frekar vantar fólk í störfin og þess vegna er hérna allt yfirfullt af útlendingum, mér finnst allavega óþarfi að búa til störf sem við þurfum að sækja fleiri útlendinga í.

Get ekki meir, er farin að svitna á sköflungunum við það eitt að sitja við tölvuna, bið að heilsa í bili er farin í sófann, Pétur.


» 11 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 12:29:55 / gunzb

hollustan í fyrirrúmi!

Við eigum að fá húsið á eftir:haha: híhaaaaa

 í tilefni dagsins ákvað ég að fá mér ýkt hollan og næringaríkan hádegismat sem saman stendur af tveimur kelloggs kex stykkjum, einu prins póló, skál af súkkulaði búðing með rjóma og kók læt til að skola þessu niður! jömmmmíííí

Pétur pæ!


» 15 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 09:42:03 / gunzb

Halló!

eftirfarandi lesist með bros á vör, glaðlega og frekar hátt, þannig þetta hljómi hálf falskt og vitlaust bara:

 "Vissir þú að þeir sem stunda líkamsrækt 3-4x í viku eru að jafnaði með hærri laun en þeir sem stunda líkamsrækt 1x í mánuði eða sjaldnar samkvæmt könnunum VR. En þeir sem stunda líkamsrækt 5x eða oftar í viku lækka svo aftur í launum samkvæmt sömu könnunum."

ok þið megið hætta að nota þennan leiðindartón og bara lesa áfram núna... en þetta sagði frú Ágústa Johnson í morgun í byrjun þáttarins í fínu formi. Hún sagði þetta nákvæmlega svona og eins og þetta kom frá henni mátti þakka líkamsræktinni fyrir að fólk er með hærri laun... Ef ég væri með þennan þátt hefði ég aldrei sagt frá þessu... þetta hlýtur að vera útaf því að fólk sem er á hærri launum hefur ráð á því að vera í ræktinni en ekki útaf því að fólk er í ræktinni fái það hærri laun eins og hún vildi meina. Fólk sem stundar líkamsrækt 1x í mánuði eða sjaldnar á örugglega ekki fyrir líkamsræktarkortum á stöðvar höfuðborgarinnar og fólk sem er 5x eða oftar í viku er greinilega ekki að vinna langan vinnudag eða er að vinna færri tíma og fá þar með lægri laun, eða hvað?

 Það styttist óðum í að við fáum húsið, okkur er farið að hlakka mikið til, við týnum örugglega hvort öðru svona fyrst um sinn... en þetta verður munur, bara í hávaðamengun fyrir það fyrsta... í gær sat ég í tölvunni inn í stofu, Árni Steinn stóð fyrir framan mig og dúndraði bolta í grí og erg í vegginn á ganginum því hann var að æfa aukaspyrnur, Andri Daði sat á gólfinu með plast dýr í ýmsum stærðum og var að dunda sér við að henda þeim eins langt á hann getur með tilheyrandi látum og Rikki var að hlusta á fréttirnar og var sjónvarpið mjög svo hávært svo hann gæti nú heyrt hvað þeir voru að segja... ég var komin að því að fara á rúntinn hahaha...

Vorum í hesthúsinu um helgina, mætti í ræktina báða dagana, fæ ipod í vikunni, þarf að hringja í Lúther, þarf að byrja að pakka, og fer að fá húsið... bodyjamið er án efa það skemmtilegasta sem við höfum keyrt og lögin eru geggjuð! En samkvæmt niðurstöðum kannana VR þá fer ég að lækka í launum ef ég passa mig ekki á mætingu í ræktina, fór í gær fer á morgun og fimmtudag það eru 3 skipti þannig Birgitta ég má bara mæta í eitt í viðbót:$ bwahahaha....

well smell ya later píps... Pétur.


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 10:45:48 / gunzb

en kjút! eða kannski ekki!

elsti stóri litli bróðir minn sendi mér þetta í tölvupósti og þetta er eitthvað sem mér finnst ýkt fyndið! Meira að segja smá krúttað, allavega ef þið skoðið myndbandið og skoðið fyrir aftan hægri olnbogann þegar myndbandið er akkúrat 55:55 þá munið þið sjá tvær mjög sætar vinkonur í verslunnarleiðangri í Bónus!

Takk fyrir þetta Sigurður! hhahahaha

 

http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/section?Category=VEFMIDLAR&Template=VefTV&ChannelID=10&ProgID=
29950&ProgType=2003&ItemID=26641&progCItems=1

» 14 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 10:09:29 / gunzb

tjing tjing tjing the drinks are on me!

Kannski er kominn tími á að ég skrifi smá fréttir hingað inn....

 Við erum búin að kaupa okkur hús, við keyptum parhús hér í Keflavík, settum mína íbúð upp í og erum með Rikka hús á sölu, þannig ef þið viljið kaupa ykkur hús í Grindavík þá er bara að hafa samband, við erum með eitt svaka fínt! hehe...

 Húsið er sem fyrr segir parhús, 187 m2, með innbyggðum bílskúr, 3 svefnherbergjum, svo er arinn vúhú rómó :haha: ... Við þurfum ekkert að gera í rauninni nema að mála svona eins og maður gerir hvort er alltaf. Við skoðuðum húsið á miðvikudaginn í síðustu viku, gerðum tilboð í hádeginu á föstudag, fengum svar seinnipartinn og fáum húsið 15.mars:!:

Við höfum eiginlega ekki gert mikið meira en að horfa á hvert annað og flissað, ýkt skemmtilegt :haha:

Við vorum með strákana um helgina, Árni Steinn var sprækur og eyddi helginni í hjólreiðatúra um bæinn en Andri Daði var rosalega lasinn litla músin, með bullandi hita og lá bara eins og klessa greyið. Þeir mega eiga það strákarnir okkar að þeir kunna að vera veikir... láta ekkert fyrir sér hafa. Við enduðum með að fara með litla kallinn til læknis en það er greinilega bara einhver pest í honum, vonandi jafnar hann sig sem fyrst!!!

Kúba salsa námskeiðið sem við vorum á er búið :cry: það verður framhaldsnámskeið sem byrjar í næstu viku og okkur langar að fara á það líka en það verður líka á föstudagskvöldum og það hentar okkur svo illa því við viljum ekki vera að láta passa herra Rúriksson öll föstudagskvöld þegar hann er hjá okkur, minna mál með herra Sigurðsson, hann vakir hvort er alltaf eftir okkur og fær smá kósý stund eftir á en hinn er svo lítill og þarf sína hvíld.

Í þessari viku eru BodyJam tímarnir opnir öllum hmm hmm Siggi Markús!!! En svo byrjar nýtt námskeið í næstu viku. Mér finnst ógeðslega gaman að kenna þetta og skil Siggu vel að vera spæld yfir því að hafa þurft að láta þetta af hendi en svona er þetta maður getur ekki verið allsstaðar!

Svo er eins gott að fara að auka við sig í ræktinni til að geta sprangað um á bikini með stolti þegar við förum út í sumar hehe...

Jæja, ég vildi bara láta ykkur vita að lífið og lukkan leikur við okkur og kasta á ykkur kveðju, Pétur.


» 15 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 09:34:47 / gunzb

X-Factor?

Ég var að horfa á endursýninguna af X-Factor ruslinu í gær, ég get ekki horft á þetta án þess að tuða, ég stóð sjálfa mig að því í gær þegar ég horfði að svara sjónvarpinu fullum hálsi. Ég fæ bara alveg svakalegan kjána hroll þegar ég horfi. Ég get ekki fyrir mitt litla líf horft né hlustað á Ellý án þess að hvæsa á sjónvarpið. Hvað er málið, manneskjan er haltari í máli en fótalaus manneskja í hálku! Og fyrst þetta er allt svo æðislega vel gert að mati dómnefndar hlýtur eitthvað að vera að hátölurunum í sjónvarpinu mínu! Ætli þetta sé svona glatað í öðrum löndum líka??? Íris???

Síðasta vikan í body jaminu er hafin en örvæntið ekki því ég byrja á nýju námskeiði 27.feb og mun það vera í 6 vikur og þýðir það einungis eitt, það er óskað eftir nærveru Surgs!

Síðasti tíminn í kúba salsa verður á föstudaginn og verð ég að viðurkenna að mér finnst það ýkt fúlt en það er verið að tala um að halda framhaldsnámskeið og myndi ég vilja fara á það með mínum heitt elskaða því miðað við hvernig okkur hefur gengið mætti halda að við værum alin upp á klúbbunum í Havana! Þetta er ýkt skemmtilegt, mæli eindregið með að fólk fari í svona þó það sé ekki nema til að hlæja af sjálfum sér!

Ég ætla að fara að gera eitthvað, hef hvort er ekkert meira að segja í bili, Adios Pedro!


» 17 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 09:41:37 / gunzb

jáhá það er ekkert annað!

"Þá var kvartað yfir ammóníaklykt frá Fitjum í Njarðvík og reyndist það vera álgjall.Þegar álgjallið kemst í snertingu við sjó verða efnahvörf í álinu og myndast við það gufur og lykt, sem minnir á amoníak, að því er segir á vef lögreglunnar. Haft var samband við Brunavarnir Suðurnesja og þeim tilkynnt um málið. Heimilt er að losa álgjall á þessu svæði." MBL.IS

"Mikinn fnyk, sem fólki fanst einna hels geta verið af ammoníaki, lagði yfir íbúðahverfi í Keflavík og Njarðvíkunum í gærkvöldi og barst lögreglu fjöldi kvartana. Við athugun kom í ljós að hann stafaði af álúrgangi frá álverinu í Straumsvík, sem sturtað er í landfyllingu rétt við Skipasmíðastöð Njarðvíkur, eftir að hafa verið endurunninn að hluta í Helguvík.

Ef sjór kemst í úrganginn verða efnahvörf í honum, sem mynda gufur og lykt, að sögn lögreglu. Í vissum vindáttum berst þetta svo yfir íbúðahverfin. Ekki liggur fyrir hvort lyktin eða gufurnar eru skaðleg." VISIR.IS

nei ok, EKKI liggur fyrir hvort lyktin eða gufurnar eru skaðleg! Nei nei, væri ekki fínt að athuga það áður en þessu drasli er fleygt bara hérna í sjóinn, hvers konar vinnubrögð eru þetta???? Afhverju er þessi fargað við byggð? Mikið fara svona vinnubrögð í skapið á mér!

Er þetta búið að vera lengi í gangi? Eru fleiri svona úrgangshaugar hérna í kringum bæjarfélagið? Getur verið að Reykjanesbær sé í fréttunum eftir allar helgar útaf þessu, ætli þetta fari í skapið á okkur? Önnur hver manneskja sem deyr af þessu svæði virðist deyja úr krabbameini getur það verið úrgangstengt? 


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 12:29:36 / gunzb

smá úrdráttur...

undan farna daga er ég búin að svara endalausum símtölum frá vanþakklátum bæjarbúum útaf snjómokstri, af 40-50 símtölum er ein, einungis EIN kona búin að hringja og þakka okkur fyrir vel unnin störf. Fólk virðist ekki skilja að það á ekkert að hringja í okkur það á að hringja í þjónustudeild Reykjanesbæjar það eru jú þeir sem ráða hvar er skafið!!!

Árni Steinn tábrotnaði í síðustu viku, hann er eiginlega búinn að jafna sig.

Ásta Guðný og Gísli eignuðust fermingardreng í vikunni, hann er voða lítill og sætur en er samt rosalega stór miðað við ný fætt barn.

Ég er búin að taka við body jam námskeiðinu og mun klára þetta, 4 vikur eftir.

Við erum byrjuð á kúba salsa námskeiðinu, förum í 2.tímann í kvöld, ýkt gaman!

Ég var að panta ferð fyrir familíuna í 3 vikur í sumar til Fuerteventura. Árni Steinn ætlar að fara fyrst til Flórida með pabba sínum í 2 vikur, vera svo heima í 12 daga og fara svo með okkur Rikka og Hildi, Garðari og þeirra börnum. Það ætti að vera stuð!

Rikki gaf mér Arsenal treyju með nafninu mínu aftan á í gær, svo sætur!

Ég veit ekki hvað ég ætla að gefa honum í bóndadagsgjöf en eitthvað verður það, kemur í ljós á eftir.

Við verðum stór fjölskylda um helgina og vonandi verður gott veður svo það verði hægt að vera eitthvað úti með pjakkana.

ég man ekki meira.

Jú Bergey, Íris býr í Bournemouth í suður englandi og er að læra ljósmyndun svo ég svari nú spurningunni um hvar hún er.

Já og ég er ýkt ánægð með val á fólki ársins hjá Víkurfréttum, Bebba og Hjölli eiga þetta svo innilega skilið!

Nú er ég hætt, adios Pedro.


» 10 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 10:13:34 / gunzb

Gleðilegt ár!!!

og takk fyrir það gamla, árið 2006 hefur verið mér rosalega gott og ég hef það á tilfinningunni að 2007 verði ennþá betra þar sem 7 er happatalan mín ;)

2006 - hélt heilsu, krakkinn orðinn árinu eldri og hress og kátur, fann ástina, græddi annan krakka, ferðaðist innan lands og utan, keypti stærri íbúð, fékk fullt af gjöfum, dansaði, söng og skemmti mér.... getur maður beðið um eitthvað meira, nei það held ég ekki, allavega ætla ég ekki að gera það, það myndi kallast frekja held ég bara!

Það er svo sem ekkert að frétta, sem er ágætt því engar fréttir eru góðar fréttir! Ég er ekkert í svakalegu blogg stuði, hef frá litlu sem engu að segja.

Stefni að því að fara betur með peningana mína þetta árið, fara betur með skrokkinn á mér, fara betur allt sem ég tek mér fyrir hendur og fara betur með lífið. Ég held að þetta heit sé ekkert svo erfitt að maður flaski á þessu, held þetta verði pís of keik!

í næstu viku byrjar nýtt body jam námskeið og er manni farið að hlakka til að tjútta aðeins og svo í næstu viku byrjar líka kúba salsa námskeiðið sem Rikki gaf mér í jólagjöf, djö hlakka ég til að tjútta við hann í 6 vikur, kannski við verðum næsta fræga danspar Íslands, hver veit 8)

Reynið nú að vanda ykkur og verið góð hvort við annað, Pedro pasadoble.


» 12 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 12:25:20 / gunzb

Gleðileg Jól....

Vildi bara óska ykkur gleðilegra jóla og láta ykkur vita að það fær engin jólakort frá okkur þetta árið, við erum einfaldlega ekki í jólakortastuði. Við sendum ykkur öllum okkar bestu óskir um gleðileg jól og vonandi hafið þið það gott um hátíðirnar, Gunnhildur, Rikki, Árni Steinn og Andri Daði.

» 7 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 11:27:30 / gunzb

Jón Olsen fimmtugur!

Jón Olsen, pabbi minn, er fimmtugur í dag! Hann og mamma ætla að taka á móti gestum í Stapa í kvöld og byrjar gleðin kl 19.00

Var honum strítt í morgun og má sjá myndir af því hérna: http://www.vf.is/mannlif/numer/29520/default.aspx

Það verður örugglega alveg frábært stuð og eru víst allir velkomnir í kvöld.

Pétur partý...


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 20:01:31 / gunzb

ný færsla... loksins segja sumir kannski...

Til hvers að vera með bloggsíðu þegar maður er ekkert duglegur að blogga? Ég hef verið að velta fyrir mér hvort ég eigi að hætta þessu rugli bara, vera ekkert að vesenast með þetta fyrst ég ætla ekkert að sinna þessu að neinu ráði! En svo hugsaði ég með mér að ég tími því nú kannski ekki þar sem ég þarf bara stundum að rífa mig útaf einhverju... en bara stundum....

eða vera með netið heima og tölvu og nota það aldrei.... kannski ef ég yrði veik myndi það nýtast mér eitthvað en á meðan ég er að hamast á þessu í vinnunni allann daginn langar mig svo lítið að nota þetta heima!

Þetta er kannski bara svipað og að eiga straujárn.... ég meina ég þarf ekkert að strauja allt bara útaf því ég á eitt svoleiðis stykki.... er það nokkuð?

En svona er þetta bara... og stundum hef ég ekkert að segja, hvort sem þið trúið því eða ekki! En í dag varð mér hreinlega misboðið þegar ég heyrði í fréttum að fólk hafi verið með dónaskap og algjört tillitsleysi á vesturlandsveginum þegar banaslysið varð þar í gær, hvað er að þessu hyski, já hyski leyfi ég mér að titla það! Hyski er meira að segja of fínt og vægt orð fyrir svona illa innrætt fólk! Það eina sem myndi láta þetta tiltekna fólk, ef fólk skyldi kalla, fá einhvern vott af sektarkennd er að ef þessi ungi maður sem lést sé eitthvað tengdur þeim.... ojjjbjakkkk og sveiettan!!! Það ætti eiginlega að stilla þessu fólki upp í vetrargarðinum og halda sýningu á þeim, svo við hin gætum farið og búúú-að á þau!!!

En verðum við ekki að fara að vanda okkur betur í umferðinni? Mér finnst persónulega stundum alltof hægt að keyra á 90km hraða, stundum finnst mér að hámarkshraðinn eigi að vera hærri! En stundum er ég ferleg því þá er ég alveg að lúsast áfram en það er nú eiginlega bara ef það er vont veður með snjókomu og tilheyrandi vetrarhættum.... þrátt fyrir að ég sé með tvo varabílstjóra sem halda að þeir séu miklu betri en ég, tek það fram að ég er með bílpróf en ekki þeir! hmmm hmmm ... það ætti nú að segja þeim eitthvað!!! En ég er nefnilega með gott mottó í umferðinni og það er, betri er mínútu töf en eilífð í gröf! Doddi í Bókabúðinni sagði þetta einn veturinn, vel mælt!

Ég held við þurfum öll að líta í eigin barm og byrja á því að temja okkur góða siði í umferðinni áður en við fyrir að fara fram á hitt og þetta.... oft á tíðum eru þessi hræðilegu slys vítavert gáleysi því miður!

Mér finnst samt sem áður þessi þynging laganna sem tóku gildi um mánaðarmótin síðust sum hver alveg útí hött! Mér finnst algjör óþarfi að hegna fjöldanum fyrir heimskupör þeirra fáu sem teknir eru daglega fyrir ofsaakstur hér og þar um landið. Finnst ekki sanngjarnt að manneskjur sem aldrei hafa stundað hraðaakstur fái núna 15þús króna sektir ef þeir mælast á 98 km hraða... bull er þetta.... en mér finnst aftur á móti mjög flott að þeir sem teknir eru á ofsaakstri sé sviptir ökuréttindum á staðnum og fái allt upp í 300þús króna sekt!

Mér finndist samt flottast að gera þetta eins og í Finnlandi, þar eru sektirnar vissar prósentur af heildarlaunum, Þannig að þeir ríku borga meira en borga jafn mikið hlutfall og þeir fátæku.... þetta er svalt kerfi þar sem þetta snertir þá buddu allra eins!

Jæja ég ætla að leggjast í sófann og glápa á kassann... er á meltunni að smjatta á saltpillum,

Farið varlega, hægar kveðjur, Salti-Pétur!


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11